Trefjaplast er okkar fag

Einkum trefjaplastbátar

Nú er kominn sá tími að margir sjómenn fara að huga að bátum sínum enda langt strandveiðisumar í vændum. Eitt verkefni margra er að skipta um færi og rétt að vara við að það skiptir máli hvernig það er gert. Undanfarið hef ég fengið nokkrar 6000i rúllur í viðgerð sem voru með ónýt móðurborð og…

Ein helsta ástæða þess að móða kemur á skjáinn á handfæravindunum er sú að straumkapallinn hefur togast út úr rúlluni og skilið eftir greiða leið fyrir raka. Rakinn sem kemst inn í rúlluna eyðileggur skjáinn, móðurborðið og yfirhöfuð allt sem fyrir er. Mikilvægt er að fyrirbyggja að strekkst geti á kaplinum, t.d. með því að…

Þegar lítið er að gera í bátasmiðjunni er alveg upplagt að búa til blóðgunarkassa. Þessir eru í stærra lagi en henta sérlega vel á síðuna á Sóma 900 bát, taka ábyggilega 100kg hvor. Nú er bara að fara með þá um borð, skera þá í rétta hæð og skrúfa festingarnar á þá. Vantar þig blóðgunarkassa,…

Bliki ÍS er færeyingur og líkt og aðrir eins bátar á hann það til að grafa sig svolítið niður að aftan á siglingu. Trefjar framleiða flotkassa á Skel 26 bátana og passar sá flotkassi þokkalega á færeying. Þar sem kassinn er ekki ætlaður á þennan skrokk þurfti að ákveða botnlínuna og þar var kassinn engin…

Það er slæmt að skemma bátinn sinn og sínu vera væri að missa fjölmarga daga af strandveiðum í þokkabót. Hvítasunnuhelginni var fórnað og báturinn klár á veiðar annan í hvítasunnu. Á yfirborði sjávar flýtur ýmislegt sem getur skemmt báta. Þetta fékk skipstjórinn á Báru ÍS að reyna í sumar. Eitt vandamálið við skemmdina var að…

Jónína Brynja var brotin á svolítið sérstökum stað, efst á botninum framarlega í vélarrúminu. Engin aðkoma var að brotinu innan frá svo viðgerðin var öll gerð utan frá. Sprungan sjálf var ekki alvarleg að sjá en sakir þess að ekki var hægt að komast að henni innan frá þurfti viðgerðin að vera bæði þykk og…

Gamall vinur hafði samband á dögunum og spurði hvort hægt væri að búa til slétta plötu úr trefjaplasti. Svarið er einfalt, já, og það er lítið mál. Ég leiddi Friðrik í fáum orðum hvernig þetta væri gert en þar sem ég var einmitt að fara að búa til sambærilegar plötur í loftaklæðningu tók ég nokkrar…

Sum verkefni eru ekki mikilfengleg en geta skipt miklu máli. Eitt slíkt var að laga brot í lunningu undir línuspili á Hrefnu ÍS frá Súganda. Eigendur voru búnir að fjarlægja allt sem fyrir var og eftirleikurinn einfaldur en áhrifaríkur. Plastað var sitthvoru megin við krossvið sem hafði verið settur í lunninguna þegar báturinn var smíðaður…

Á dögunum festum við kaup á húsnæði fyrir bátasmiðjuna. Húsnæðið er að Hafnarbakka 5 á Flateyri. Þetta er mun stærra húsnæði en það sem við hugðumst byggja á Suðureyri en húsnæðið þarfnast stærri hurða og talsverðs viðhalds. Húsnæðið er mikið stærra en núverandi húsnæði og það býður upp á ný tækifæri. Meira pláss skapar ný…

Margir þekkja stangveiðibátana á Suðureyri og Flateyri, Bobby bátana. Bátarnir voru smíðaðir af Bátasmiðjunni Seiglu á sínum tíma en hafa á síðustu árum fengið minna útlitslegt viðhald. Metnaður nýrra eigenda stendur til að bæta snarlega úr þessu og gengið hefur verið frá samningi við Bátasmiðjuna Freyju um útlitslegt viðhald á öllum bátunum. Bátarnir verða teknir…

Eins og margir bátar mátti Rúnar við smá “hressingu”. Vélin hafði orðið fyrir vatnstjóni, rafkerfið var lélegt að hluta til og útlitið var bara eins og við var að búast. Í ljós kom að vélin þurfti mikla upptekt og fengin var skiptivél, ekki mikið notuð og virðist bara virka vel. Rafkerfið var endurnýjað að miklu…

Á tímabili var erfitt að fá skjái á 6000i rúllurnar en það er liðin tíð. Við höfum skipt um skjái á nokkrum misgömlum 6000i rúllum með góðum árangri. Okkur þykir rétt að benda á að móða innan á skjá rúllunar er merki um að raki hafi komist í hana, sá raki getur orsakað bilanir ef…

Starfsemi bátasmiðjunnar hefur oftast snúið um okkar eigin báta en þannig verður það ekki endalaust og Blikanes er eitt dæmið um það. Blikanesið fékk smá yfirhalningu, við skitpum um botnstykki, dýptarmæli, plotter, bættum annarri talstöð við, smíðuðum loftnetsfestingu, skiptum um hurð og máluðum bátinn.

Hafdís er annar Sómabáturinn sem við eignuðumst, reyndar sá fyrsti en við tókum þennan ekki í gagnið til að byrja með þar sem hann var stórskemmdur, vélarlaus, með ónýtt rafkerfi og svona frekar allslaus. Síðustokkarnir voru hálfbrotnir af, við hentum þeim. Bátinn vantaði vél og við settum Cummins 8,3L 300 hestafla vél í hann. Svo…

Sjómannadagurinn er lítils virði ef engir eru kappróðrarbátarnir. Gammur og Geysir skemmdust í vonskuveðri, brotnuðu talsvert og mál manna er að sjómannadagurinn hafi ekki verið haldinn á Súganda því engir voru kappróðrarbátarnir. Við ákváðum að láta gott af okkur leiða og tókum að okkur að gera við bátana rétt áður en strandveiðivertíðin hófst. Ekki tókst…

Þessi bátur er annarskonar verkefni en önnur verkefni sem hafa ratað til okkar. Hér er um nýsmíði að ræða, tilbúinn skrokkur sem búið var að dekka og bara allt annað eftir. Báturinn er breskur skemmtibátur, Sea Lord 44. Hann var fluttur til landsins fyrir mörgum árum, tekin af honum mót, reyndar tvö mót og upp…

Hugrún Fjóla er sami bátur og Gunna Valda, við gerðum ekki margt í þessum bát, máluðum hann fyrir nýjan eiganda og settum botnstykki fyrir Furuno dýptarmæli. Stundum eru verkin lítil en nýmálaður bátur er alltaf augnayndi.

Gunna Valda er sennilega minnsta verkefnið okkar. Við keyptum bátinn með ónýta vél, skiptum um vél á Akureyri og sigldum honum heim til Súganda. Við gerðum bátinn út eitt sumar á strandveiðar og gekk vel. Bátinn seldum við næsta vetur og þá fékk hann nafnið Hugrún Fjóla DA-4. Bátnum réri ég svo eitt sumar á…

Vonin hét Ásmundur og sökk í höfninni Hofsósi. Báturinn var hífður á þurrt og þannig var hann þegar við keyptum hann snemma árs 2020. Engar skemmdir voru á skrokk en allur búnaður í bátnum var ónýtur, vél, rafkerfi, tæki o.fl. Meðan við áttum bátinn gerðum við nokkrar breytingar á honum. Fyrst tókum við kassann af…